Aðalvalmynd

Teljari

Auglýsing

Gagnasafn

Tenglar

Aron Martin Ágústsson

ég er hættur að blogga hér, blogga bara á myspace núna,

www.myspace.com/aronma

Fótbolti getur verið skemmtilegur.....Aron Martin Ágústsson

Já þið lásuð rétt, ég sagði að fótbolti getur verið skemmtilegur afþví að ég heyrði einstaklega skemmtilega frétt í útvarpinu áðan.

Hún hljómar svona:

Liverpool liðið skellti sér á fyllerí á föstudaginn og fóru á kareoke bar. Menn voru orðnir vel kenndir og Craig bellamy minnir mig, bað Riise að taka eitt lag, Candle in the  wind nánar tiltekið en Riise var of edrú til þess og sagði nei. Bellamy tók þessu greinilega sem móðgun og þegar Riise var kominn upp í rúm og undir hlýja sæng, bramboltast Bellamy upp á herbergi til hans, grípur með sér 9 járn úr golfsetti sem var svo einstaklega vel staðsett og lemur Riise víst í spað.

Já knattleikur er ekkert skemmtilegur fyrren einhver neitar að syngja í kareoke og er laminn í handrukkara stílnum fyrir það.

Er frekar pirraður, var í góðu skapi fyrir ca. 10 min  þökk sé ákveðinni manneskju og ekki nóg með það heldur bilaði bíllinn um helgina á Ólafsvík, ónýt gírolíu dæla, en það reddast. Eins og ég minntist á fór ég til Ólafsvíkur um helgina og skellti mér á árshátíð FSN með Ingu, og ball eftirá. Rífandi stuð. En nú er ég kominn aftur til Rvk og þarf að taka strætó aftur, það er ömurlegt.

Vegna versnandi skaps nenni ég ekki að blogga meira. Kveð að sinni.

- Aron M

Xbox 360.....líka fyrir mannæturAron Martin Ágústsson

Já nú er tími til að blogga smá.
Það er búið að vera feiknarstuð hérna, Inga og Emil voru hérna um helgina og Emil meira að segja svaf í LazyBoynum ein nótt,

Okkur leiddist á Fösudaginn og við áttum einhvern bjór þannig að við sátum sötrandi inni í eldhúsi að spjalla og þegar kominn var smá hiti í mannskapinn ákváðum við bara að skella okkur niður í bæ. Valur varð eftir á meðan ég, Inga og Emil skelltum okkur á Hressó, þarsem við dönsuðum við villtann undirleik trylltra DJ´a (kannski var bara einn, hljómar betur svona) svo ákváðum við að rölta upp laugarveginn og skelltum okkur inn á bar11 og komumst einhvernveginn upp á 2. hæð en um leið og við komum þangað snerum við aftur niður sem var nú hægara sagt en gert.

Þegar út var kominn rakst ég á 2 félaga úr skólanum og spjallaði aðeins við þá. Þegar við héldum á Barinn sem var því miður lokaður svo við fórum heim, allt í allt var þetta skemtilegt kvöld.

Annars er ekkert svakalega mikið að frétta héðan. Valur keypti Xbox360 og leikinn Lost planet og við erum búnir að vera að slefa yfir honum síðustu daga, magnaður skítur. Reyndar fór ég í gær upp í elko til þess að kippa aðeins í hann og testa Playstation 3 í geðveiku heimabíói, mikil vonbrigði þar á ferð. PS3 er ekki neitt við hliðina á Xbox360.

Nóg um það, Nenni ekki að skrifa meira í bili, Þetta blogg var tileinkað ykkur sem leikið við gyllinæðina á fögrum sumarkvöldum, ég kveð að sinni.

- Aron
p.s.

Var að breyta um myspace síðu, addaði öllum   sem voru inni á gömlu. Nýja síðan er í tenglunum

101Aron Martin Ágústsson

Jáh nú er sko góðri helgi því miður lokið.


Þetta var sko geðveik helgi, hún byrjaði eiginlega á fimmtudaginn þegar Inga kom til Rvk, stæ kennarinn minn var veikur þannig að ég var ekki í tíma. Héldum svo uppá það að það voru 5 mánuðir síðan við byrjuðum saman, elduðum Spagettí með pestó og svo pönnukökur með sveppa og osta fyllingu...ekkert smá gott. Fórum svo á Borgó ball á nasa á fimmtudaginn sem var merkilega gaman.
Það var reyndar geðveikt fyndið ball,
Röðin á karlaklósettinu var mikið lengri en á kvenaklósettið þarsem að allir strákarnir hrúguðust inn til að laga á sér hárið. Svo kom sami gaurinn tvisvar að leita að eyrnalokk sem hann hafði misst. Einkar mikið var af hommalátum og þá er ég ekki bara að segja það, þeir voru án gríns að nudda sér uppvið hvorn annann og svo létu þeir bara eins og ekkert væri eðlilegra, sem það er sennilega hjá þeim.
Einnig hitti ég gaura sem voru með mér í bekk þegar ég var í Rimaskóla. Gaman gaman.

Svo chilluðum við bara á föstudagskvöld, ég og  inga unnum í Trivial. Getið lesið gullkorn á http://thesugarpillows.blogspot.com

Svo á laugardaginn byrjaði ég í nýju vinnunni, ég fékk starfið hjá Max raftækjum og er að vinna í í Tölvudeildinni við að selja tölvur, tölvuleiki osfv. Svo um kvöldið fórum við á ball með Parket á hornfirðingaþorrablóti, en við vorum í klukkutíma að reyna að finna hraðbanka en það endaði með því að við keyrðum alla leið frá seltjarnarnesi niður á granda til þess að fara í 11-11 sem er opið allann sólahringinn, kellingin sem afgreiddi var eins og skorpa af brenndu ristabrauði, s.s. búin að fara eeiiinum of oft í ljós og svo kunni hún ekki neitt á kassann.

Fór aftur að vinna í morgun, var að  vinna á lagernum í allann dag við það að setja þvottavélar, þurkara, frystikistur, eldavélar osfv í bíla. Hlakkar til á eftir, valur kemur heim með Xbox, cant wait.

Ég kveð að sinni.

- Aron Martin

101Aron Martin Ágústsson

Hello, Im Ron burgundy

Sælt veri fólkið nema sumir, þeir meiga éta skít.

Já ég var fyrir nokkrum dögum búinn að skrifa sæmilega langa bloggfærslu en hún kom ekki inn og ég vona innilega að sá sem ber ábyrgð á því að hún gerði það fái gott spark í punginn og drepist úr gyllinæð.

En það þýðir ekkert að svekkja sig yfir því svo maður heldur áfram að klóra sig áfram í þessum harða heimi þar sem að fólk sem á spark endar ofaná. Nennir einhver að sparka í mig ?

Er bara búinn að vera í skólanum vikuni, það er nú bara ágætt. Mér gengur merkilega vel miðað við árangur minn síðari ár. Þegar ég er ekki í skólanum er ég heima að nördast. Ég og valur erum búnir að vera að gera myndbönd. Og skjóta upp geimskutlum.

Á eftir fer ég í atvinnuviðtal hérna útá horni á vídjóleigunni, það er gegt.
Max raftæki eru ekki að fara að svara mér, þeim leist greinilega ekki vel á mig.

Fór til Gísla frænda í gær að horfa á landsleikinn en eins og einhverjir vita þá hef ég ekki mikinn áhuga á íþróttum en í gær var ég öskrandi og hoppandi eins og bandóður bandormur að kvetja landsliðið til dáða.
Þetta var sko geðveikur leikur, ég klikkaðist þegar Logi gaf á danann. Er nú búinn að jafna mig á því núna.
Hef líka komist að því að X-ið 9.77 er ónýt stöð. X-ið, Kiss og einhverja fleiri stöðvar sameinuðust og mynda nú einn stóran skítahaug, og það rétt sést í tærnar á Frosta og Valtýr þarsem þeir liggja með hausinn ofan í skítnum, sellouts. En það ótrúlega er að X-ið er þrátt fyrir það betri en FM-957, þeir spila samt mörg lög sem að heyrast einnig á FM eins og Razorlight - America, og þarna ógeðslega helvítis horbjóðinn sem sprengdi af sér Hate today lagið. En samt spila þeir einstaka góð lög.

Svo ætlar Inga að koma á morgun, ætlum í afmæli´n stuff, það verður geðveikt.

En ég hef ekki mikið meira að segja, ætla að henda inn mynd af því sem ég er búinn að vera að gera í Maya og er í myndbandinu.

- Gesundheit

-Aron

Geimverah!

101Aron Martin Ágústsson

Yo nigga´s and ho´s

Sorry sory sorry, ég er bara ekki góður í því að byrja blogg. Það er leiðinlegasti parturinn af því að blogga.
Yeah það er allt fínt að frétta héðan úr reykjavíkinni, Valur "flutti" inn í vikuunni. Var samt bara að fá rúm í dag, hann er búinn að sofa í Lazyboy síðustu 2 nætur. What a trooper.

Skólinn er fínn, ekkert nema útblingaðir hommar sem að myndu tattúera Diesel eða Sautján á ennið ef að það væri í boði, ég sá varla fyrir ljósinu sem endurkastaðist af eyrunum á gaurunum, í fyrsta Stýritækni tímanum sat ég fyrir framan 3 af þeim og eina sem þeir gátu talað um var vélsleðar, geðveikt gaman, héldu líka ekki kjafti.

Ég tek strætó í skólann, gegt gaman. Tók samt uppá því að telja rónana sem ég sé....er kominn uppí 6 eða 7 og ég veit að einn heitir runólfur og kemur úr skagafirðinum, ofsalega málglaður gaur. Gaf líka einum sígarettu.
Einusinni var ég líka að labba á laugarveginum og labbaðiframhjá róna sem sat á bekk og pissaði á sig þegar ég labbaði framhjá, mér fannst það geðveikt fyndið fyrst. Svo Fannst mér þetta einfaldlega bara ógeðslegt en samt smá fyndið, og já....ætla ALDREI að setjast á almennings bekk aftur, ever....aldrei að vita hver hefur migið þar.

Ég sé líka alltaf einn frægann gaur sem tekur sama strætó og ég....hann er nú meira frægur fyrir að vera versti söngvari í heimi en nokkuð annað, hann er líka í versu hljómsveit ever, Overdrive heitir hún og ég skal setja mynd af honum hérna fyrir neðan.

Annars er ekki mikið annað að frétta af mér. Ákvað að henda inn einu bloggi svona þarsem að ég hef lítið annað að gera.

Lifið heil.....

- AronGaurinn er lengst til hægri
Lengst til hægri

hann er btw alltaf í þessum bol

101Aron Martin Ágústsson

Jæjja, hvað segiði mér nú ?

Ég var að koma heim af skóla"setningu" í fti ég er ekki í mörgum tímum þarsem að ég er búinn með svo mikið í skólanum en ég byrja á mánudaginn.

Reykjavík getur verið allveg ótrúleg, ég fór í verslunarleiðangra í gær í Ikea og góða hirðinn, Ikea var nú bara eins og ég bjóst við reyndar er nýja verslunin úber stór og flott en það var best að fara í góða hirðinn, ég fékk 17" svartann IBM skjá á 300kr.......300!!!!!! allveg ótrúlegt og svo keytpti ég mér líka The Shadows - A string of hits á vinyl á 200 kall, magnaður skítur.

Svo kíktum ég og Inga í bíó í gær og shit, geðveik mynd. Fórum á Children of men og ég er ekki enn að trúa því hveru góð hún var, þetta er svona mynd sem að maður verður að sjá í bíói til þess að njóta fullkomlega geðveikt vel leikin leikstýrð og unnin bara ***** mynd.

Annars er ég að fara að éta núna var að elda mér Egg og brauð, gerist það betra? ha ??? ha????

-Aron

101Aron Martin Ágústsson

Jæjja nú er ég kominn í borg óttans og sit við nýja matarborðið mitt að borða ristað brauð.
Það var geðveikt skrýtið að koma hingað, finnst eins og ég sé að koma í heimsókn hingað en ekki til að flytja hingað, íbúðin er gegt töff, 20cm veggir en örþunnar hurðir. Þetta er wierd as hell en mig hlakkar ekki til að byrja í skólanum á fimmtudaginn en það er bara wierd fyrst held ég....vona ég. Set inn myndir um leið og ég get, annars kveð ég úr reykjavík.

- Aron

Gleðileg jólAron Martin Ágústsson

GLEÐILEG JÓL, ekki allir jafn svalir og ég að fá brauðrist í jólagjöf, beat that !!!

- Aron M

Jólin...Aron Martin Ágústsson

Já, ég ER að blogga, hef ekkert haft tíma í það.
Var í prófum til föstudags en eftir þau fór ég á pakkhúskvöld sem að bar brilljant fyrir utan það að ég fann ekki einusinni á mér. Það er ömurlegt þegar það gerist.

á laugardaginn fór ég út með strákunum og eftir að hafa rúntað í svolítinn tíma datt okkur í hug að nýta tækifærið þarsem að það var nú einusinni snjór að fara að láta draga okkur um á slöngu byrjuðum samt á því að fara í nokkrar brekkur.

Á sunnudaginn flutti Inga, eftir að ég sagði bless fór ég nú bara heim og var latur, einhvernveginn ekki í stuði til þess að gera neitt, kíkti samt aðeins út með hödda og emil fór svo heim að horfa á Dexter sem að eru by the way geðveikir þættir, horfði á nýjasta þáttinn í gær og get ekki beðið eftir næsta. Gæti plottið verið betra? Forensic gaur sem er sociopath og raðmorðingi að elta annann raðmorðingja ? nei held nú ekki.

Núna fer að styttast í það að ég fari að yfirgefa hreiðrið og fari til Reykjavíkur í skóla, myndi skella inn mynd af húsinu sem að ég mun búa í en ég nenni ekki að kveikja á ferðatölvunni

 Sjáumst seinna.

- Aron
Síða 1 af 2

Klukkan

Könnun

Hver á þennann bústað?

Atburðarteljari